Gengar - 3D prentað Pokémon Spil
Gengar - 3D prentað Pokémon Spil
3D prentað Gengar Pokémon spil frá PokéNörd
Pokémon safnið þitt vaknar til lífsins með þessu dularfulla 3D prentaða Gengar spili sem sérstaklega er hannað til þess að hengja upp á vegg.
Spilið sýnir Gengar brjótast út úr klassísku Pokémon spili með áhrifamiklum þrívíddar smáatriðum sem fanga bæði glettni og draugalega nærveru þessa vinsæla Pokémon.
Hvert spil er handunnið og einstakt, svo mismunur á áferð og lit getur verið á milli eintaka.
Þetta 3D Pokémon spil er fullkomið sem veggskraut, sýningargripur eða sem gjöf fyrir sanna Pokémon aðdáendur.
Eiginleikar:
• Hágæða 3D prentun úr umhverfisvænu PLA
• Þrívíddar hönnun byggð á klassísku Gengar spili
• Hægt að hengja upp á vegg eða setja í stand (standur fylgir ekki með)
• Sérpöntun í öðrum litum í boði
• Stærðir í boði: S – 15 cm, M – 22,5 cm, L – 28 cm
Athugið: Þar sem varan er ekki alltaf til á lager getur afhending tekið allt að 5 virka daga.
Ekki tókst að hlaða framboði á afhendingum
Deila
